Ísland á Norðurlandameistaramóti málaranema í Stokkhólmi
28.08.2026
Guðjón Ívar Gränz verður fulltrúi Íslands á Norðurlandameistaramóti málaranema sem
fram fer í Stokkhólmi dagana 31. ágúst til 3. september. Mótið er haldið á tveggja ára fresti
og þar etja efnilegir málaranemar og nýsveinar frá Norðurlöndunum kappi í fjölbreyttum
verkefnum sem reyna á fagmennsku, nákvæmni og færni.