Guðjón Ívar Gränz verður fulltrúi Íslands á Norðurlandameistaramóti málaranema sem fram fer í Stokkhólmi dagana 31. ágúst til 3. september. Mótið er haldið á tveggja ára fresti og þar etja efnilegir málaranemar og nýsveinar frá Norðurlöndunum kappi í fjölbreyttum verkefnum sem reyna á fagmennsku, nákvæmni og færni.
Norðurlandameistaramót málaranema, NMO (Nordiska Mästerskapen för Målarlärlingar), er einn helsti keppnisvettvangur ungs fagfólks í málaraiðn á Norðurlöndunum. Þar fá keppendur tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og bera saman færni sína við jafnaldra frá hinum Norðurlöndunum.
Keppnin reynir á fjölbreytta þætti málaraiðnarinnar og þurfa þátttakendur meðal annars að sýna mikla nákvæmni, tæknilega færni, hraða og sjálfstæð vinnubrögð. Verkefnin geta meðal annars falist í veggfóðrun, nákvæmnismálun, litablöndun, skrautmálun og lakkmálun. Ekki er því nóg að kunna vel til verka – skipulag, yfirvegun og fagmennska skipta einnig miklu máli.
Guðjón Ívar keppir fyrir Íslands hönd Í ár er það Guðjón Ívar Gränz sem keppir fyrir hönd Íslands. Í sumar hefur hann sinnt æfingum og undirbúningi þar sem markmiðið er að mæta eins vel undirbúinn og kostur er til Stokkhólms.
Guðjón er fimmti ættliður málara og rennur því blóð til skyldunnar að standa sig sem allra best. Kristín Sigurðardóttir málarameistari og kennari við Tækniskólann er þjálfari Guðjóns.
Málarameistarafélagið, ásamt fagfólki og fyrirtækjum úr greininni, stendur þétt að baki Guðjóni og styður hann við undirbúning og þátttöku í mótinu.
Þátttaka Íslands á mótinu á sér góða sögu. Þess má til gamans geta að á síðastliðnum tveimur mótum voru keppendur Íslands kvenmenn. Árið 2024, þegar Norðurlandameistaramótið fór fram í Reykjavík, keppti Hildur Vala Valdimarsdóttir fyrir Íslands hönd. Tveimur árum áður, árið 2022, var Guðrún Helga Blöndal fulltrúi Íslands á mótinu í Osló.
Mikilvæg kynning fyrir málaraiðnina Keppnir á borð við NMO snúast ekki eingöngu um að ná góðum árangri. Þær eru jafnframt mikilvægur vettvangur til að vekja athygli á þeirri þekkingu, nákvæmni og fagmennsku sem felst í iðngreinum.
Þátttakan gefur ungum iðnaðarmönnum dýrmæta reynslu, eykur faglegan metnað og gefur þeim tækifæri til að læra af því besta sem gert er á Norðurlöndunum. Jafnframt styrkir mótið tengsl milli fagfélaga, skóla, meistara og ungs fagfólks þvert á landamæri.
Slíkur vettvangur er einnig mikilvægur fyrir framtíð greinarinnar. Með því að sýna fram á fjölbreytileika og fagmennsku málaraiðnarinnar má vekja áhuga fleiri ungmenna á iðn- og starfsnámi og þeim fjölbreyttu tækifærum sem þar bjóðast.
Norðurlandameistaramót málaranema fer fram í Stokkhólmi 31. ágúst til 3. september og verður spennandi að fylgjast með
MMF