Nýsveinahátíð 2026 lokið

Nýsveinahátíð félagsins fór fram laugardaginn 7. febrúar sl. á hotel Natura.

Hátíðin var sennilega sú fjölmennasta frá upphafi og er það mat gesta að vel hafi tekist til.

33 nýsveinar í 21 löggiltri iðngrein voru heiðraðir fyrir góðan árangur sinn.

Kristín Magnúsdóttir og Tómas Bergþór Þorbjörnsson voru heiðruð sem heiðursiðnaðarmenn félagsins 2026.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, sem jafnframt er verndari hátíðarinnar, veitti viðurkenningar og flutti ræðu til nýsveina.

Ráðherra mennta- og barnamála, Inga Sæland, flutti ræðu.

Erlingur Gunnarsson, nýsveinn frá 2023, flutti ræðu.

Elín Hall lék tónlist fyrir gesti.

Nemastofa heiðraði við þetta tækifæri þrjú fyrirtæki.

Félagið þakkar öllum þeim sem áttu þess kost að vera með okkur, fyrirtækjum og félögum sem komu með fána sína, styrktaraðilum hátíðarinnar og öllum þeim öðrum sem aðstoðuðu við að gera hátíðina jafn veglega og raun bar vitni.

Við þökkum eftirtöldum styrktaraðilum fyrir þeirra aðkomu auk allra þeirra fagfélaga sem komu með fána sína á hátíðina:

  • Reykjavík Natura Berjaya Iceland Hotels,
  • Mjólkursamsalan
  • Ölgerðin Egill Skallagrímsson
  • Grænn markaður
  • Mata
  • Mekka Wines & Spirits
  • Bláa Lónið
  • Nói & Síríus
  • Ísafoldarprentsmiðja
  • Toyota á Íslandi
  • B&L

Myndir frá hátíðinni má finna hér.