Haustfundur

Lækjargata 14a
Lækjargata 14a
Haustfundur Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík fer fram laugardaginn 17. nóvember í baðstofu iðnaðarmanna, Lækjargötu 14a, Reykjavík.
Baðstofan er á efstu hæð gamla Iðnskólans á horni Lækjargötu og Vonarstrætis og er gengið inn frá sundinu milli Iðnskólahússins og Iðnó.
Á fundinum verða nýir félagar teknir inn.
Inntaka nýrra félaga fer fram samkvæmt gamalli hefð en að henni lokinni er stutt erindi og að því loknu málsverður með hátíðlegu ívafi og samverustund sbr. eftirfarandi dagskrá.  
Æskilegt er að verðandi nýir félagar mæti kl. 11.30 til að gefa stjórn tækifæri til þess að taka á móti þeim.
Dagskrá:
12.00 - Formaður býður gesti velkomna.
12.05 - Inntaka nýrra félaga.
12.30 - Erindi til félagsmanna.
13.00 - Hádegisverður og samverustund.
15.00 - Lok fundar.
 Sérstakur gestur verður Þórarinn Eldjárn, rithöfundur.
 Verð hádegisverðar er kr. 5.000 (innifalið gos, malt og appelsín) og að auki verður hægt að kaupa öl og léttvín. Einnig er innifalið happdrætti með glæsilegum vinningum.
Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa með sér reiðufé („posi“ er ekki á staðnum).
Makar eru boðnir velkomnir.