Andlát Hjartar Guðnasonar

Falleg útför fyrrum vara-formanns og ritara IMFR fór fram frá Laugarneskirkju 26. júní sl.
Hér að neðan er ágrip af æviskeiði Hjartar ásamt minningargrein sem félagið sendi í MBL.
Farinn er góður drengur sem verður sárt saknað.

______________________________________________________

Hjörtur Guðnason, grafískur miðlari, fæddist í Kirkjubóli á Vopnafirði 16. ágúst 1950. Hann lést eftir veikindi á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. júní 2026.

Foreldrar hans voru Guðni Þórarinn Jónsson, f. 1914, d. 1982, og Halldóra Áslaug Geirsdóttir, f. 1916, d. 1996. Hjörtur var yngstur fimm systkina: Guðni (Nunni), f. 1939, Þórunn Elísabet (Dúdda), f. 1943, d. 2026, Jón Geir (Jónsi), f. 1944, d. 2025, og Halldór Elís (Haddi), f. 1945, d. 2022.

Hjörtur giftist Guðrúnu Jónu Valgeirsdóttur, bókara, f. 1953, þann 20. júlí 1974 og hefðu þau því fagnað 52 ára brúðkaupsafmæli í ár. Foreldrar Guðrúnar voru Valgeir Ágúst Einarsson, f. 1913, d. 1994, og Guðríður Tómasdóttir, f. 1916, d. 1987. Hjörtur og Guðrún eignuðust fjögur börn: Hörpu Guðríði, f. 1972, Valgeir Þór, f. 1978, og tvíburana Andra Örn og Sindra Má, f. 1990. Harpa á fjögur börn: Mána Huginsson, f. 1999, Birtu Barðdal Huginsdóttur, f. 2003, Ísak Barðdal, f. 2009, og stjúpsoninn Jón Arnar, f. 1995. Sambýliskona Mána er Elín Sif Halldórsdóttir, f. 1998. Valgeir Þór er giftur Sonju Magnúsdóttur, f. 1984. Saman eiga þau tvö börn, Ara Magnús, f. 2015, og Eddu Guðrúnu, f. 2019. Sambýliskona Sindra er Arna Margrét Jónsdóttir, f. 1990. Saman eiga þau tvö börn, Daníel Þór, f. 2020, og Anítu Rún, f. 2026.

Hjörtur lauk burtfararprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1975 og sveinsprófi í offsetljósmyndun, litgreiningu og plötugerð ári síðar. Meistararéttindi fékk hann 1980.

Á námsárum sínum vann Hjörtur í Prentþjónustunni en lauk námi í Prentmyndastofunni, þar sem hann starfaði til 1991, síðast sem verkstjóri. Hann vann sem hönnuður hjá Iceland Review frá 1991 til 1995. Hann rak eigið fyrirtæki um tíma og kenndi á námskeiðum hjá Prenttæknistofnun. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra stofnunarinnar í ársbyrjun 1996 og gegndi því til september 2001, þar sem hann starfaði jafnframt fyrir Margmiðlunarskólann.

Eftir það vann Hjörtur m.a. hjá Prentmeti, Gutenberg, Think og loks Ísafoldarprentsmiðju frá 2008 til starfsloka í desember 2019.

Hjörtur gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum fyrir prentiðnaðinn og vann ötullega að menntamálum greinarinnar. Hann sat í sveinsprófsnefnd í skeytingu og prentsmíði um árabil og tók þátt í gerð sveinsprófa. Hann var sérfræðingur í prentsmíði og grafískri miðlun á vettvangi WorldSkills og WorldSkills Europe frá 2011 til 2016 og fór utan með keppendur fyrir Íslands hönd.

Hann var einn af stofnendum og sat um árabil í stjórn Prentsöguseturs. Einnig sat hann í stjórn Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, ritari um árabil og varaformaður 2018-2026. Þá ritaði hann fjölda greina í Prentarann, tímarit Félags bókagerðarmanna, nú GRAFÍU.

______________________________________________________

Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík kveður í dag kæran vin og samstarfsmann til fjölda ára.

Á vettvangi IMFR tók Hjörtur að sér fjölmörg verkefni tengd útgáfumálum þess, stjórnarstörfum og á vettvangi faglegra málefna fyrir hönd þess, verk sem honum voru veittar verðskuldaðar viðurkenningar fyrir og skilja eftir minningar um einstaklega vel og smekklega unnin handverk. Hjörtur var maður sem taldi aldrei eftir sér að vinna verkefni fyrir hönd félagsins.

Auk þess að sitja í stjórn félagsins var Hjörtur ritari þess um nokkurra ára skeið og síðar varaformaður frá árinu 2018 til ársins 2026, eða þegar veikindi gerðu honum ekki lengur kleift að sinna því starfi.

Á vettvangi samnorræns samstarfs iðnaðarmannafélaga eignaðist Hjörtur fjölda vina meðal kollega frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Færeyjum, sem minnast hans með hlýju og senda fjölskyldunni samúðarkveðjur sínar.

Um leið og við kveðjum góðan dreng, með þakklæti fyrir samferðina, sendir félagið Guðrúnu Jónu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur.

Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.

(Káinn)

Fyrir hönd Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík,

Halldór Þ. Haraldsson formaður.

______________________________________________________

Fleiri minningargreinar birtust í Morgunblaðinu útfarardag Hjartar.