Aðalfundur IMFR var haldinn í Baðstofu félagsins miðvikudaginn 20. maí sl.
Ágætis mæting var á fundinum.
Fram fóru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ný stjórn var valin og skipað í nefndir og ráð félagsins.
Skýrsla stjórnar var framlögð ásamt reikningum.
Þrír nýir félagar voru teknir inn í félagið á fundinum.
Samþykkt var hækkun félagsgjalda.
Að fundi loknum voru fram bornar veitingar í boði félagsins.

HH