Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin hátíðleg í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 4. febrúar 2017 kl. 14:00 Þetta var ellefta nýsveinahátíð IMFR til heiðurs nýsveinum sem hafa lokið sveinsprófi með afburðarárangri. Á hátíðinni voru nýsveinar úr löggiltum iðn- og verkgreinum veitt verðlaun fyrir afburðaárangur í sinni iðngrein á sveinsprófi.
Hátíðin er einnaf hornsteinunum í starfi félagsins og er mikil áhersla lögð á að umgjörðin sé glæsileg, nýsveinum, meisturum þeirra, iðnfélögunum og verkmenntaskólum landsins til heilla. Það eru formenn sveinsprófsnefndanna sem tilnenfna afburða nýsveina til verðlaunanna.
Hér má sjá myndir teknar við tækifærið.