|
|
| Forsíða |
Afhjúpun listaverks. Í tilefni aldarafmælis IR gaf
Iðnaðarmannafélagið skólanum listaverk eftir Helga Gíslason myndhöggvara og var
það staðsett við skólann þannig að það blasir við aðal aðkomuleiðum að
skólanum. Gissur Símonarson fyrrverandi formaður og heiðursfélagi
iðnaparmannafélagsins og Helgi Einarsson formaður Iðnemasambands Íslands
afhjúpuðu listaverkið. Listamaðurinn valdi verkinu nafnið Mentor eða
lærifaðir sem leita má til í leit að faglegri fullkomnun.
Afmæli
Iðnskólans í Reykjavík Þann 1. október voru 100 ár síðan Iðnskólinn
í Reykjavík var settur í fyrsta sinn. Í tilefni af því var haldinn hátíðarfundur
í Hallgrímskirkju þann 30 september. Þessi samkoma var mjög
hátíðleg og eftirminnileg. Skólameistari setti hátíðina og ávörp fluttu
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, menntamálaráðherra Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir, fulltrúi samtaka
Iðnaðarins Haraldur Sumarliðason og formaður Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík,
Ásgrímur Jónasson en hann skýrði m.a. frá því í ávarpi sínu að
Iðnaðarmannafélagið hefði ákveðið að gefa skólanum listaverk í tilefni
af þessum tímamótum sem afhjúpað yrði að hátíðarfundi loknum. Að
fundi loknum bauð Iðnskólinn til samkvæmis í skólanum. Þar voru skólanum færðar
margar góðar gjafir. Iðnskólafélagið gaf skólanum kr. 500.000.00 og afhenti
formaður félagsins, Ásgrímur Jónasson gjöfina í
samkvæminu.
Hádegisverðarfundur. Hádegisverðarfundur
í nóvember er fastur liður í starfsemi Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Í
ár hefur verið ákveðið að fundurinn verði haldinn í gamla Iðnskólanum í
Reykjavík við Lækjargötu eins og gert hefur verið undanfarin ár. Fundurinn
verður haldinn laugardaginn þann 13. nóvember og hefst hann að venju kl. 12.00
með inntöku nýrra félaga. Húsið verður opnað kl. 11.30. Fyrirlesari á
fundinum verður Ólafur Grétar Kristjánsson deildarsérfræðingur hjá
námskrárdeild Menntamálaráðuneytisins. Í erindi hans verður fjallað um upphaf
iðnaðar og greiningu hinna ýmsu starfa í mismunandi iðngreinar hér á landi,
aðkomu hagsmunaaðila og stjórnvalda að veitingu iðnréttinda og þróun og
breytingar iðngreina á Íslandi. Þetta er sérlega áhugavert erindi, ekki
síst í því ljósi að á fundi Iðnskóafélagsins síðar í mánuðinum verður
fjallað um framtíð iðnmenntunar í langri framtíð eða út þessa öld. Um
veitingar sér Lárus Loftsson að venju.
Vinsamlega skráið ykkur til
þáttöku hjá eftirtöldum:
Ásgrími Jónassyni í síma 554 6058 eða 692
4750, netfang aj@imfr.is
Guðmundi Ó
Eggertssyni Símum: 581 2714 (heima), 553 5653 (vinna), eða 897
9600.
Athugið að skrá ykkur til þáttöku í síðasta lagi
fimmtudagskvöld 11. nóv. n.k.
Tölvunám. Eins og
félögum er kunnugt hefur Iðnaðarmannafélagið ákveðið að bjóða félagsmönnum upp á
tölvunámskeið. Við höfum ákveðið að halda námskeiðin í gamla iðnskólanum við
Vonarstræti og nota þannig tækifærið til að rifja upp gamla góða daga þegar
við vorum þar margir við nám í okkar iðngrein. Þannig verða námskeiðin okkur
þreföld ánægja. Í fyrsta lagi lærum við að nota tölvuna okkur til gagns
og gamans. Í annan stað rifjum við upp gamlar og góðar minningar frá
skólaárunum og í þriðja lagi hittast gamlir vinnir og/eða skólafélagar. Námið
verður sniðið að þörfum þeirra sem starfa sinna vegna hafa ekki haft tækifæri
til að tileinka sér kosti tölvunnar og notkun hennar við samskipti og
upplýsingaleit á netinu.
Hægt verður að velja dagnámskeið á
þriðjudögum frá kl. 14.00 - 17.00 eða kvöldnámskeið á mánudögum frá kl. 18.00 -
21.00. Kennsla hefst þriðjudaginn 9 nóvember kl. 14.00, dagnámskeið og kl.
18.00 kvöldnámskeið. Námskeiðið er samtals 18 klst. og því lýkur fimmtudaginn
25. nóvember.
Innritun er hjá formanni félagsins Ásgrími Jónassyni í
símum 554 6058 og 692 4750.
Nánar í
fréttabréfi. Stjórnin.
Velkomin á vefsetur
Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Vefsetrinu er ætlað það hlutverk
að veita upplýsingar um Iðnaðarmannafélagið, sögu þess og starfsemi. Annar
tilgangur setursins er aukin virkni félagsmanna og samskipti. Á
vefsetrinu verður sérstakur dálkur um fagleg málefni hinna ýmsu iðngreina,
spjallrás þar sem hægt verður að skiptast á skoðunum og ýmislegt
fleira. Félagið mun bjóða upp á byrjendakennslu í notkun vefjarins en sú
kennsla er hugsuð fyrir þá félagsmenn sem ekki hafa á þess kost að tileinka
sér notkun tölva. Við vonum að þetta framtak nýtist vel við kynningu á
félaginu og komi til að verða lyftistöng í starfi
félagsins.
|
Samkeppni ungra iðnaðarmanna World skills.doc
|

|

|

|

|

|
|
|